20 desember 2007

Island og jul!



Þá er loksins komið að því...Ísland í fyrramálið. Maður er búinn að bíða spenntur eftir að hitta alla og slappa af í jóla og áramóta fríinu :) Þetta er búið að vera rosalega hratt að líða og manni finnst bara eins og maður sé að fara til útlanda (sem maður er í rauninni). Það verður svo rosalega skrítið að koma til landsins í fyrsta skipti síðan í ágúst og heyra ekkert nema íslensku útum allt. Vona bara að ég detti ekki útúr dönskunni svona um leið og ég er búin að ná henni!


Við semsagt lendum að staðartíma kl 14:30 og reynum svo að heimsækja alla áður en við förum aftur 7 janúar.


Ég reyni kannski að blogga eina eða tvær færslur á íslandi en gæti samt gleymt mér í gleðinni :) Þá kemur allavega færsla í janúar!


En allavega ...þá segi ég bara.. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! :)


Kærlig hilsen frá Evu og Erni

02 desember 2007

Regn og jul?



Ætli maður þurfi ekki að láta undan þrýstingi og blogga loksins þar sem maður býr svona "langt" frá. Á þessarri stundu er alveg hreint úrhelli hjá okkur hérna í Danmörkinni og ég sé fyrir engan endi á henni eins og er. Í gær var okkur svo nokkuð brugðið því að við sáum allt í einu blá blikkandi ljós hérna fyrir utan gluggann og þegar við kíktum út sáum við slökkvibíl og heyrðum í fleirum á leiðinni...hvað í ósköpunum...þeir urðu þar með þrír talsins og allir með þvílíkt blikkandi ljós og við héldum því að það væri eitthvað svakalegt að gerast þarna fyrir utan. Sáum að það var eitthvað fólk hjá inngangnum á lestarstöðinni og svo var byrjað að spúla gólfið þarna...þá var það bara einhverjir hálfvitar sem höfðu tekið öll dagblöðin sem eru við innganginn og kveikt í þeim. Svaka viðbúnaður við einhverju svona og núna er enginn búinn að taka þetta upp og þetta liggur ógeðslega subbulegt á sama stað.


Svo er það af honum "Ödda cykel" ...litla greyið er búinn að lenda í því svona fjórum sinnum að þurfa að finna gat á aftara dekkinu sínu og setja bót á það. Síðan gerðist það í gær þegar hann var að hjóla heim í rigningu slíkri og er núna...að það bara sprakk á þessu blessaða afturdekki og Örn þurfti að labba alla götuna okkar heim. Hann hóf svo allsherjarleit ad nýja gatinu og þurfti ekki að leita lengi því að það heyrðist í því langa leið. Hann getur svo vonandi hjólað á því næstu daga án vandræða :)


Síðan er það að Erla og Þórir (amma og afi Arnar) komu í heimsókn til okkar sunnudaginn 25 nóv. Þau komu í kaffi, köku og kanilsnúða A La Eva og Örn. Síðan fórum við með þeim niður í Kaupmannahöfn og fundum okkur Jensen's Bøfhus og fengum alveg rosalega góðan mat. Við fórum líka að skoða hótelið þeirra seinna um kvöldið. Eftir að við kvöddum þau þá fórum við og hittum Eini, Maríu, Önnu Kristínu og Þröst á áströlskum bar. Anna Kristín er systir Maríu og Þröstur kærastinn hennar og þau voru einnig í heimsókn þessa helgina. Þar voru þau semsagt að spila Pool og við ákváðum að joina bara. Tók nokkrar myndir af því sem eru svo inná myndasíðunni minni.

Þar sem það er svona langt síðan ég skrifaði síðast þá er gaman að segja frá því að Ásdís (mamma Arnar) kom í heimsókn helgina 10 nóv og var því okkar fyrsti gestur! Hún lenti nú samt í því að það byrjaði að snjóa hérna daginn eftir og á mánudeginum þegar hún ætlaði síðan að fara með Erni niður í Field's, þá var lestarkerfið í algjöru rugli útaf sambandsleysi í ørestad og allar lestar sem áttu að fara þangað gengu ekki. Þau þurftu því að fara í skrautlega strætóferð en enduðu loks í Field's. Ég hitti þau síðan þar eftir skóla. Daginn eftir fóru þau síðan á Strikið og ég rétt náði að hitta þau áður en Ásdís tók lest útá flugvöll frá Hovedbanegård. Ég var búin að hanga í skólanum mínum til kl 5 til að geta klárað vefsíðuna mína. Fór í prófið daginn eftir og fékk 12 :) (hæsta einkunn á dönskum skala).


Við erum svo farin að hlakka endalaust til jólanna og öllu sem þeim fylgja. Við erum komin með eitt gervi jólatré úr tréi og svo líka eitt sætt stráhreindýr. Keypti líka eins Hyacyntu þar sem ég elska lyktina af henni. Við erum búin að troða öllum blómunum okkar útí glugga til að þau fái svo sem mesta birtu núna í öllu skammdeginu.

Það verður svo rosalega gaman að koma til Íslands um jólin og hitta fjölskyldur og ættingja :) Ef það eru einhverjar spes óskir um jólagjöf, þá er endilega að láta okkur vita bara.

Jólakveðja, Eva!

11 nóvember 2007

Sne!


Já bara að láta alla Íslendinga vita að það er komin snjókoma hér í Danmörkinni ! Mamma hans Arnar sem kom í gær til okkar fékk því þetta skemmtilega veður :)

Eins og er erum við síðan með íslenskt læri í bígerð í ofninum...jess !



Hilsen! Eva

01 nóvember 2007

Haust og MTV

Nú er ég búin að hugsa um að blogga í þónokkurn tíma en ætlaði þó að klára heimaverkefnið mitt fyrst. Ég var semsagt að gera "dokumentation" um heimasíðuna mína og þurfti að skila því til að geta farið í prófið sem er síðan seinna í mánuðinum. Þetta er alveg ágætis áfangi sem ég er í núna fyrir utan eina manneskju í tíma með mér. Það er kona sem hefur búið hérna í 15 ár og talar kannski svipað mikla dönsku og ég...við erum í sömu tölvustofunni alltaf og hún situr einu sæti frá mér því að tölvan á milli er biluð (sem betur fer). Hún semsagt kann ekki mikið á tölvur og þar lendi ég í því að hjálpa henni ALLE TIDERS! Ohh hún gerir ekkert nema spurja spurja spurja og svo þegar mig langar til að vera í friði þá þykist ég vera að gera eitthvað í tölvunni minni og finn að hún er að horfa í áttina til mín og bíður eftir að segja eitthvað. Úff...bíð bara eftir að áfanginn sé búinn.


Allavega. Ég fór síðasta sunnudag í heimsókn til Þórhildar og Tryggva til að sjá litlu rúsínuna þeirra og hitta Dóru, Hregga og Þórdísi. Litla dúllan fékk nafnið Brynhildur Freyja og hún er ekkert smá sæt. Síðan þegar ég var að halda á henni þá var hún alveg rosalega róleg og sofnaði síðan bara.






Það fer ekki framhjá neinum hérna að það sé komið haust því að trén eru að verða allsber og eru ekkert smá flott á litin. Síðan er nú búið að kólna soldið hérna en þó ekki jafn mikið og á Íslandi :) Það er oftast í kringum 10-13 stig hérna myndi ég halda.

(mynd kemur síðar)



Sævar kom síðan í heimsókn síðustu helgi og við skruppum ásamt Eini til Dabba og Möggu í smá hitting. Sævar var búinn að heyra margt um eitthvað ölflæði hér í DK og fékk svo að prófa smá ölflæði. Við tókum samt seinustu lestina heim þar sem við nenntum ekki að eyða annarri helgi í að fara endalaust seint að sofa og vakna um miðjan dag.


Danir:
- Mjög margir keyra um í rafmagnsknúnum hjólastól.
- Maður verður fyrir mjög miklum óbeinum reykingum hérna, í lest, stætóskýlum og úti almennt.
- Það er annar hver unglingur með eitthvað gat einhvers staðar, sérstaklega í andlitinu. Held að það sé tískan í dag?
- Síðan hafa kosningarnar alls ekki farið fram hjá neinum heldur því það er búið að hengja upp auglýsingaskilti á hvern einasta ljósastaur hérna!


Vil síðan óska yndislega pabba mínum til hamingju með afmælið :) Og einnig Sirrý frænku og afa mínum. En þau áttu öll afmæli núna í október.

Núna ætla ég allavega að fara að horfa á MTV EMA Live :D Hilsen!

22 október 2007

Heimsókn og fleira...

Jæja núna er komið að mér(Örn) að blogga. Eva er búin að nuða í mér í nokkurn tíma og loksins gaf ég undan.
Ég og Eva erum búin að vera í haustfríi alla síðustu viku og hefur maður nú ekki beint gert mikið á þeim tíma annað en að setja saman nýju tölvuna og passa.

Auðríkur ( http://audrikur.blogspot.com ) fékk okkur til að passa yngsta fjölskyldumeðlim sinn, Björn Orra, síðastliðið föstudagskvöld og fékk hann auk þess að gista.


Hérna er ég að kenna litla manninum hvernig maður tekur pizzu úr ofni, ekki verk fyrir hvern sem er.


Eva var fljót að svæfa Björn með sögunni um Dodda.


Höddi kom í heimsókn síðastliðið laugardagskvöld auk Dabba, Möggu og ekki má gleyma Degi. Síðan kíktu nágrannar okkar, Einir og María, yfir líka. Þannig að við vorum núna með fulla stofu af bjórþyrstum íslendingum. En viti menn ég var auðvitað búinn að sjá þetta fyrir og var því búinn að skella 2 kippum af bjór út á svalir og 2 inní ískáp. Næsta skref var að skreppa niðrí bæ en það tekur um 25 mínútur í lest. Við byrjuðum á að fara á stað sem heitir Jazz House en Eddi félagi okkar var þar inni. Við hættum öll við þegar kom í ljós að það kostaði um 65 dkk inná staðinn. Þá hófst leit að nýjum stað og lentum við inná mjög svo furðulegum stað sem spilaði aðeins sýru tónlist.


Þarf að segja eitthvað fleira? Sæll

Fólk var orðið frekar þreytt á þessari tónlist og hófst þá leit að betri stað. Dagsi mundi eftir stað í grennd við okkur sem að er með Hawaii þema þ.e. sandgólf og brimbretti útum allt. Höddi splæsti þar á línuna Jarðaberja daquiri sem að braðgaðist mjög vel.



Eftir þetta þá fórum við heim og tókum við fyrstu lest heim um klukkan 6:30. Einir missti náttúrulega af henni því að hann var upptekinn við að fá sér McDonalds í 3 skiptið á 3 tímum.


Það er orðið frekar kalt hér í dk og hefur það sína kosti og galla.


Gallar

  • Þarft að klæða þig vel
  • Ekki gaman að hjóla í skólann

Kostir
  • Hægt að kæla bjór úti á svölum

  • Engar flugur og kóngulær að ráðast á okkur

Eva er með kort í rækt sem að heitir Sats og gat hún boðið mér að koma í viku frítt. Var þetta fyrsta skipti síðan ég flutti út sem ég hef lyft lóðum en maður er sko ekkert orðinn að einhverri kúlu því að sumir fara 2svar í viku í fótbolta og hjóla 4 sinnum í viku í skólann. Auk þess sem að ég ákvað að það væri frekar sniðugt að hjóla í ræktina og það tók mig um 40mínútur hehe.


Kveðja frá landinu þar sem ölið flæðir

08 október 2007

Macromedia Flash

Jæja bloggid mitt er hreinlega komid í einhverja vitleysu núna tannig ad tad er tími til kominn fyrir nyja færslu sem inniheldur blogg.

Tad er slatti búinn ad gerast sídan sídast og tví ekki skrítid ef ég gleymi ad segja frá einhverju. Ætla ad setja tví nokkra punkta hérna.

*Vid erum búin ad hengja upp nýjar gardínur.
*Ég er búin ad kaupa mér kort í líkamsræktarstodina SATS og byrja á morgun.
*Ég er nú búin med fyrsta áfangann í skólanum og sá næsti byrjadi í dag.
*Tad eru búnar ad vera stodugar heimsóknir hjá Eini og Maríu sídustu helgar.
*Ég er búin ad setja inn 2 ny myndaalbúm.



Ég má nú til med ad byrja frásognina á Oktoberfest! Eins og flestir vita tá var Oktoberfest tessa sidastlidna helgi og skólinn hans Arnar vard ekki útundan. Reyndar var tad Íslendingafélagid í DTU sem stód fyrir svona smá hitting en fyrir utan tad tá var líka eitthvad á vegum skólans. Vid gátum semsagt keypt risa bjórkrús med 1 líter bjór á 60 dkk. Ekkert smá mikid must ad eiga tessar krúsir svo vid turftum audvitad ad kaupa tvær :D Sídan voru pantadar pitsur en viti menn, tær voru ekki nema 2 og hálfan tíma á leidinni! En tær voru samt gódar tegar tær loks komu og ég smakkadi í fyrsta skipti Kebab Pitsu! EINMITT....pitsa med kebab kjoti, kebab sósu og fersku káli. Mjog gód :) Fórum svo heim um 11 leytid (já byrjudum nefnilega kl 5).



Já og núna sídustu helgi voru semsagt brædur Einis í heimsókn og vid fórum af tví tilefni nidur í Kaupmannahofn. Byrjudum í partyi hjá Edda vini strákanna og vorum ad leika okkur í Xbox tar sem María vann stórsigur á okkur hinum. Eddi byr í fínustu íbúd í midri Nørrebro og tad er nú soldid spes ad fara tangad eftir oll lætin sídustu vikur. Eftir tad fórum vid svo labbandi um hverfid til ad finna einhverja skemmtistadi og ætludum ad fara á Jolene sem Dóra Takefusa og onnur Dóra eiga en hann lokadi kl 2 (akkurat tegar vid komum). Stoppudum á nokkrum odrum en héldum svo áfram yfir í átt ad Strikinu. Á einhverri hlidargotu tar fundum vid svo Rex skemmtistadinn sem var ekkert spes tannig ad vid fórum yfir gotuna á Skarf. Hann var fínn og med góda tónlist svo vid stoppudum í nokkra tíma tar. Tókum svo lestina heim tegar hún byrjadi ad ganga aftur kl 6:15 :D



Ég og Ørn eldudum svo pitsu í gær med einhverju tilbúnu deigi sem vid keyptum útí búd. Tegar vid opnudum sídan umbúdirnar tá kom í ljós einhver ílong dós sem átti ad rífa í sundur. Ørn gerdi tad svo en tá hálfgert sprakk dósin fyrir trýsting og deigid prumpadist út. Vid vorum tar farin ad halda ad vid fengjum ekki pitsu en sídan vard tetta ad fínasta pítsabotni og pitsan smakkadist bara nokkud vel :)

Allavega...tá sit ég alltaf í tíma ad blogga tví ég hef í rauninni ekkert annad ad gera tessa stundina. Er komin í nýja stofu tar sem er ekkert loftflædi og 30 tolvur tannig ad tad er rétt hægt ad ímynda sér andrúmsloftid. Tessi "modul" sem ég er ad byrja í núna verdur næstu 5 vikurnar og er adallega verid ad kenna okkur á Macromedia Flash :) Whoohooooo.

Hilsen

03 október 2007

Rannveig Hafsteinsdóttir - Spes færsla

Þetta er spes blogg fyrir hana Rönnu mína þar sem ég gleymdi henni algjörlega!

Fyrirgefðu Ranna mín! Ég veit ekkert hvernig ég fór að því að gleyma að gera handa þér kveðjufærslu.



Hún Rannveig átti semsagt afmæli núna 25 ágúst og varð tvítug stelpan :)

Til hamingju með það elskan mín!


Þessi linkur er tilnefndur henni



01 október 2007

Afmælisbarn

Til hamingju með 20 ára afmælið Sigrún Ásta mín !
Gangi þér vel í lífinu og öllu því sem þú aðhefst :)
Kveðja Eva Kristín

27 september 2007

Afmælisbarn dagsins

Til hamingju með afmælið Þórir Már :)
Hafðu það gott á afmælisdaginn og borðaðu nóg af kökum!
Kveðja frá Evu og Erni

25 september 2007

Artí fartí fotograf

Ég er semsagt ad blogga í skólanum (ástædan fyrir fáum íslenskum stofum) tví ad ég er í tessari ædislegu Mac tolvu og med risa Mac skjá...en í windows styrikerfi!!! WHAT! ...vil helst bara vera í Mac umhverfi í Mac tolvu...tad skemmdi alveg fílinginn.




En jæja, ég hef semsagt eiginlega ekkert annad ad gera tví danir eru svo ofbodslega rólegir á tví alltaf. Vid stelpurnar sem erum í mínum hóp erum semsagt búnar ad taka tæplega 200 ljósmyndir í "studie" og tad kom svona ágætlega út midad vid hvad vid erum ekkert reyndar á tessu svidi. Tær myndir eru fyrir eitthvad verkefni sem vid erum ad gera í 5 vikur. Set nokkrar hérna med í blogginu. En tad er semsagt bara ein og hálf vika eftir af fyrsta kúrs og sídan byrjar einhver annar.








Gaman ad segja frá tví í leidinni ad tegar ég og Ørn fórum út í morgun tá var gód rigning og Ørn hjóladi á medan ég fór í nyju A lestina, sem fer btw á 10 min fresti núna í stadinn fyrir H lestina sem fór á 20 min fresti. Tessu var breytt núna sídastlidin sunnudag og allt mjog fínt fyrir utan tad ad í gær stoppadi lestin ekki af einhverjum ástædum á minni stoppustod og ekki heldur næstu fjórum svo ég turfti ad hanga í lestinni á medan hún fúttadi eitthvert lengst útí skóg! En ég nádi svo lestinni til baka strax og komst heim.










Tá er mamma hans Arnar ad koma í heimsókn núna í nóvember og tví fyrsti gesturinn úr okkar fjolskyldum sem kemur í heimsókn til okkar :) Svo erum vid búin ad panta okkur flug til Íslands og áætladur komutími er tví 21 des um 3 leytid. Sídan fljúgum vid aftur af klakanum 7 jan 2008. Verdum sennilega heima hjá Erni um jólin tví mamma hans, pabbi og Þórir eru ad fara í skídaferd eftir jól en Svanlaug ætlar að vera heima og joina okkur um áramótin, verdum svo heima á Økrum restina :)




Svo er ad segja frá tví svona í restina ad Tórhildur og Tryggvi eru búin ad eignast litla dúllu og ég óska teim innilega til hamingju med tad! Tau eiga eftir ad standa sig mjog vel í foreldrahlutverkinu :)




Hej Hej

15 september 2007

Næstum komið...

Til hamingju með afmælið mamma!
Þú ert alveg hreint yndisleg mamma og frábær fyrirmynd...Elska þig :*
Til hamingju með afmælið Bjarki minn!
Besti litli bróðir ever :*
Og Til hamingju með 21 árs afmælið Alda :)
Annars var það bara það að við erum búin að setja upp nokkrar nýjar myndir á síðunni hans Arnar og ég set inná mína innan skamms. Semsagt einhverjar myndir af íbúðinni eins og hún er núna og nýja handriðinu okkar sem Örn var svo myndarlegur við að smíða einn daginn. Fórum og keyptum timbur í það og þurftum að saga spýturnar sjálf niður með handsög og tommustokk! Það hefði nú verið ljúft að geta farið bara í BYKO. Allavega þá á það vonandi eftir að varna stórslysi. Síðan eru líka myndir af t.d enn einni hillunni sem við settum saman í dag.
Dóra og Þórhildur kíktu síðan í heimsókn í dag sem var mjög gaman. Dóra er hér í DK til mánudags. Þórhildur varð síðan verkfræðingur á fimmtudaginn :) Til hamingju með það!
Þangað til næst...

08 september 2007

Jeg skal på stranden og så besøger jeg min unkle :s






Já Ranna mín...nákvæmlega það sem ég var að spá í að gera :D

Ég er semsagt búin með mína fyrstu viku í danska skólanum mínum og það er soldið mikil danska töluð þar! Er búin að kynnast nokkrum núna.
Skildi í rauninni varla baun fyrstu 2 dagana þar en síðan fór þetta að koma hægt og rólega og ég var farin að skilja flestallt sem kennarinn og krakkarnir sögðu í enda vikunnar. Lenti reyndar í því á fimmt að kennarinn talaði alveg ótrúlega hratt! En það reddaðist fínt.
Við erum bara í einhverskonar Digital production kúrs í 5 vikur núna og síðan fer ég í einhvern annan kúrs.
Það er soldið erfitt að tjá sig á dönsku enn en mér fer fram með hverjum deginum. Síðan er einn strákur með mér í bekk sem er að æfa mig í dönsku, sem kemur sér vel :)
Ég keypti mér mánaðarlestarkort sem gildir þá í allar lestar og strætóa sem ganga á þeim 6 Zones sem ég fer í á leiðinni í skólann. Þannig að ég get alltaf skroppið til Kaupmannahafnar og í Field's þegar mér hentar án þess að borga neitt. Kortið kostaði samt alveg 830 danskar :) Ég keypti mér svo bók á dönsku til að lesa á þessum klukkutíma sem það tekur mig að fara í skólann.




Örn er víst kominn með einhvern rosalegan lestur í sínum kúrsum og er lesandi hálfan daginn núna. Hann keypti sér svo hjól í dag og þá fer vonandi minni tími fyrir hann að ferðast í skólann. Það var samt soldið skrautlegt hvernig þessi hjólaleit fór. Vorum búin að finna hjól sem kostaði 4000 og ætluðum að sækja það daginn eftir þegar það væri búið að setja standara á það en síðan hætti Örn við og ákvað að leita aðeins betur og að ódýrara hjóli. Fundum síðan eitt í dag sem var bara fínt og Örn ákvað bara að kaupa það. Fengum síðan hjólið í alveg rosastórum kassa og það fyrsta sem ég hugsaði var að hjólið væri nú sennilega bara næstum í heilu lagi í kassanum en stýrið væri kannski ekki á. Við ákváðum því að panta leigubíl þar sem það er soldið mikið vesen að labba með þetta í strætó. Leigubíllinn kemur svo og um leið og hann sér mig fyrir utan með kassann þá byrjar hann bara að hrista hausinn. Örn fer síðan að tala við hann og hann segir okkur að hringja á stærri bíl bara. Ég fer þá inn og fæ símanúmer hjá sendibílaþjónustu og við pöntum bíl sem á að koma eftir klukkutíma. SHIT. Hver nennir að bíða fyrir utan búð í klukkutíma að gera ekkert. Þannig að ég ákvað bara að opna kassann og gá hvort það væri ekki bara hægt að setja hjólið saman þarna á staðnum og viti menn. Hjólið er bara í heilu lagi ofaní kassanum og við þurfum bara rétt að setja pedalana á og rétta stýrið af. Þvílíkur munur og Örn gat bara hjólað í ró sinni heim og það tók hann ekki nema 7 min. Það er mjög þægilegt að hjóla hér um og ferðast í lestum og strætó.



Ég tók nokkrar myndir af Stengården station og húsinu okkar í morgun og setti þær inná myndasíðuna. Verð að fara að taka fleiri myndir svona dagsdaglega.

Við erum búin að vera soldið myndarleg hérna og elda okkur heilan kjúkling og prófa okkur áfram í hinu og þessu. Ég bakaði meira að segja muffins í dag og María bakaði skinkuhorn :)

Núna er svo bara að slappa af í sófanum og kannski sötra smá hvítvín :)

Hilsen !

30 ágúst 2007

Progress...




Núna erum við loksins búin að koma okkur ágætlega fyrir...bara smá fíniseringar hér og þar plús uppsettning á einum skáp í viðbót. Okkur líður bara mjög vel hérna enn sem komið er og erum að aðlagast dönskunni vel.

Ég þurfti að gera smá stopp í skólanum mínum á meðan við höfðum bílinn og fara með einkunnablöð til manns þar. Þegar ég hitti hann talaði ég dönsku til að byrja með og þegar ég var alveg að missa af því sem hann var að segja og þegar ég ætlaði að fara að tjá mig með flóknum orðum á dönsku þá bað ég hann um að tala ensku.... fékk til bara "NEJ, det vil jeg ikke" ...og ég varð bara að redda mér áfram á dönsku...takk! En það gekk svo bara vel og ég skildi nú ekki alveg allt en samt nóg :) Byrja svo í skólanum núna næsta mánudag og tek bara lestina í rúman klukkutíma þangað.

Örn er í einhverri kynningarviku í DTU og þar er alveg fullt af útlendingum. Hann var settur í hóp þannig að næstum enginn er frá sama landi oftar en einu sinni í hverjum hóp. Hann fór í einhverja furðulega leikskólaleiki á þriðjudag og þurfti að labba um, banka í hausinn á sér og segja "æg, æg, æg" og síðan "kylling, kylling" og fleira :D Síðan fór hann í fótbolta í dag og á morgun er svo endað á mat og partyi. Sjáum hvernig það endar.

Það eru svo komnar fleiri myndir af íbúðinni og í þetta skipti þá er búið að taka aðeins til. Það er síðan varla stakur hlutur hérna inni sem er ekki nýr.




Tókum líka lest og strætó í fyrsta skipti hér í gær þar sem Örn þurfti að skila bílnum niður í Kaupmannahöfn og ég fór á badmintonæfingu í Herlev. Það gekk nú bara mjög vel, kostaði ekki mikið og tók ekki langan tíma.
Við erum svo komin með heimasíma, internetið virkar rosalega vel og Örn keypti 37" Philips sjónvarp...og það er geðveikt flott !
Hilsen

24 ágúst 2007

Flutningurinn á Gammelmosevej

Já þá erum við loksins komin....heim! Lentum í Danmörku kl 6 að dönskum tíma og ég svaf eins og steinn alla leiðina og Örn líka. Fengum síðan nýlegan WV Passat á flugvellinum í staðinn fyrir Peugeot station bíl og hann er bara búinn að reynast okkur mjög vel.
Íbúðin var alveg eins og við bjuggumst við og jafnvel bara betri. Okkur líkar bara mjög vel við hana og frábært að hún sé glæný. Erum svo búin að vera að hendast hingað og þangað til að leita að húsgögnum, fara í ikea, jysk, elgiganten, bive mobler og enduðum svo í risastórri Daells Bolighus verslun þar sem við keyptum svo öll okkar helstu húsgögn í dag og í gær. Ég er síðan núna að bíða eftir að húsgagna sendingin renni í hlað með allt heila klabbið :) Ég er líka búin að skúra alla íbúðina einu sinni.
Það eru svo komnar nokkrar skítsæmilegar myndir af komunni okkar hingað en það koma síðan fleiri og betri seinna meir þegar ég hef tíma í það.
Hilsen fra DK

15 ágúst 2007

Útskriftarmyndataka


Já ég og Linda skelltum okkur í myndatöku og svona fínt fyrir Lindu til að hún gæti fengið góðar stúdentamyndir af sér líka og svo auðvitað svo við gætum fengið myndir af okkur saman. Alltaf jafngaman í svona myndatökum þar sem maður horfir á ljósmyndarana hamast við að skemmta manni og fá mann til að hlæja eðlilega. En jæja...okkur tókst nú samt að punga út þónokkrum ágætis myndum :) Svo fékk ég auðvitað Örn líka til að koma því að mig langaði til að fá myndir af okkur saman og svo honum með sína stúdentahúfu. Þannig að núna eiga þau loksins svona "alvöru" stúdenta myndir af sér. Ég ætla að setja hérna eina mynd inná sem mér tókst að nappa af netinu og sýna afraksturinn.


Svona er nú það. Síðan eru bara rúmlega 6 dagar í að við flytjum til Danmerkur og ég er orðin nokkuð spennt núna :D En samt ekki byrjuð að pakka enn ! Þarf sjúklega mikið að fara að byrja á því. Og hitta sem flesta áður en ég fer. Heilsið uppá mig takk !

Og síðan að lokum vil ég óska henni Lilju minni innilega hjartanlega til hamingju með 20 ára afmælisdaginn sinn sen byrjar einmitt núna 16 ágúst :) Sjáumst Lilja mín...

Hilsen

05 ágúst 2007

Til sölu

Jæja við erum að reyna að selja smá stuff sem við getum ekki tekið með okkur út. Það besta er að þetta eru allt nýlegir hlutir og lítið notaðir.

LG örbylgjuofn á 4000 kr. http://www.elko.is/elko/upload/images/products/400X400_MS1925W.jpg
Tölvuhátalarar "Kyros 321" hvítir á 4500 kr.

Látið mig vita ef einhver hefur áhuga eða vill fá frekari upplýsingar um vörurnar :)
Og ég er búin að laga stillingarnar aðeins þannig að núna virkar að gera comment hjá mér....held ég.

31 júlí 2007

3 vikur í Danmörku!

Já það er allt að gerast núna og allir að fara í sumarfrí. Verslunarmannahelgin framundan og 3 vikur í að maður flytji í Danaveldið! Maður hefur það nú einhvern veginn á tilfinningunni að sumarið sé samt að verða búið svona veðurlega séð. Búið að vera algjörlega besta sumar sem ég hef upplifað í langan tíma.
Ég ætla núna að reyna að byrja á kveðjuheimsóknum sem fyrst svo ég nái að kveðja sem flesta því að who knows...maður veit ekki hvenar maður kemur aftur til íslands á næstunni. Býst samt við að jólin séu nokkuð mikil íslandsjól.


Afmæli:

Lilja Dröfn 20 ára - 16 ágúst
Svanlaug 18 ára - 17 ágúst
Ranna 20 ára - 25 ágúst




Illusion



Hvort er hún að hreyfast til hægri eða til vinstri?
Horfðu á hana í smá stund og gáðu hvort hún breyti um stefnu.
Segðu þitt álit!
Hilsen Eva!

10 júlí 2007

Gammelmosevej

Já komnar myndir af íbúðinni! Næstum byrjuð að pakka niður af eftirhlökkun.

Ég fékk símtal frá dana þarna á mánudeginum og spjallaði við hann í rúmar 20 mínútúr og allt fór vel. Ég byrja svo í skólanum í september og við verðum vonandi búin að koma okkur ágætlega fyrir á þeim tíma. Leigjum okkur allavega bíl þarna þegar við lendum og byrjum að versla ef það gengur eftir.

Síðan þarf ég að finna út hvernig ég fer á milli staða þarna í skólann því að hann er smá spotta frá íbúðinni. En það reddast... :)

29 júní 2007

Sumarið 2007

Geggjað sumar eins og það leggur sig núna. Ég er að fíla það í tætlur allavega í vinnunni og er að ná mér í smá lit. Vinnan er líka frábær og fínasti hópur sem við samanstöndum af. Líka mikið af yngra fólki byrjað.

Usa var réttast sagt æðislegt og fjölbreytt! Síðan fór nú familían mín til Bandaríkjanna bara daginn eftir að ég kom heim :) Sumarið verður samt frekar stutt því að það fer bara að styttast í það að ég flytji !

JÁ....ég og Örn erum semsagt komin með íbúð og byrjuð að leigja frá og með 1 júlí en förum samt ekki fyrr en 22 Ágúst út. Búin að panta flug og allt og það bara aðra leið :)
Fengum íbúð í glænýju húsi í bænum Gladsaxe sem er soldið fyrir ofan Kaupmannahöfn. Hún er 50 fm og erum með eldhús og baðherbergi útaf fyrir okkur. Síðan er ég búin að skrá mig í skóla og fæ símtal á mánudaginn.

31 maí 2007

HAWAII !!

Það er svoooo nice að vera á Hawaii. Rosalega fínn hiti úti og sjórinn og ströndin eru geðveik, hótelið er fínt og við erum 10 tímum á eftir Íslandi ! Já rétt í þessu erum við að fara að borða morgunmat og fara svo á ströndina :) Blómasveigar og strápils með kókoshnetubrjóstum útum allt. Fljúgum svo heim á mánudagskvöld og förum í 3 flug.

Las Vegas var líka fínt en við vorum bara fegin að fara þaðan og til Hawaii....það var eitthvað svo allt of mikið af spilavítum og drasli að maður hafði bara eiginlega ekkert að gera þar, nema ég fór í fyrsta skipti í alvöru rússíbana og á mynd af því til staðfestingar um hvernig sú ferð var :S Það var líka bara svo sjúklega heitt þarna í LV og þurrt loft að inná hótelinu var bara við frostmark útaf loftkælingu.

Skrifa aftur við tækifæri hérna, og vil helst sjá komment þegar þið eruð búin að lesa takk !

ALOHA :D

23 maí 2007

Myndir frá ferðinni

Hérna eru nokkrar myndir komnar og ég set svo inn fleiri með tímanum.

http://picasaweb.google.com/evakristinbraga

Enjoy ;)

22 maí 2007

Borg brekkanna!


Þá erum við búin að fara í nokkrar ferðir hingað og þangað og eigum nokkrar eftir. Fórum í Alcatraz fangelsið og það er alveg ferlega magnað, pínkulítil eyja rétt fyrir utan (svona eins og Viðey) og samt alveg ógerlegt að sleppa þaðan. En það var rosalega gaman að skoða það allt saman. Fórum svo seinni partinn bara eitthvað að slæpast hér og þar og það er alltaf jafn mikið "challenge" að finna eitthvað að borða. Þetta er gjörsamlega heimur óhollustunnar og erfitt að finna stað þar sem maður virkilega heldur meðvitund af sykur og fituneyslu.


Í gær fórum við svo í rosalega vínekruferð sem stóð yfir allan daginn og það var alveg mögnuð sjón að sjá alla þessa endalausu akra af vínberjatjám. Til að komast á vínekrurnar þurftum við að fara yfir Golden Gate brúna og tókum auðvitað myndavélapásu.

Í dag áttum við síðan frídag frá öllum heimsóknum og notuðum daginn vel. Fórum niður í bæinn um 9 leytið og röltum þar um að leita að myndavélabúðum. Fundum þar nokkrar og sumar með okurverði. Fundum svo eina að lokum sem var nokkuð sanngjörn. Gerðum okkur þar með smá hlé og stungum okkur í verslunarmiðstöðina sem er þarna í miðbænum og er á 5 hæðum allavega. Ég persónulega missti mig algjörlega og keypti helling held ég, og Örn er nú búinn að finna sér soldið líka. Vorum semsagt í bænum í mest allan dag og keyptum ýmislegt. Fórum svo aftur í myndavélabúðina og ég skellti mér á eina rosalega fjárfestingu! Keypti mér semsagt Canon 30D og 2 linsur, tösku, 4 filtera, kort og batterí. JAHÁ! Eins gott að hún skemmist ekki á næstunni allavega því að hún er GEÐVEIK!

Og takið nú eftir, að þegar við vorum loksins komin uppá hótel aftur og ákváðum að fara að borða eitthvað saman á Fishermans Wharf, þá þurftum við auðvitað að taka leigubíl. Fórum í tveimur leigubílum og ég, Örn, Hjalti og Siggi vorum í seinni bílnum. Gaurinn keyrir auðvitað eins og brjálæðingur niður og upp allar brekkurnar hérna (verra er á íslandi) og þegar við vorum í síðustu götunni og sáum restina af liðinu okkar, þá þarf endilega að koma gatnamót og við lítum til vinstri ..... þar kemur bíll á fleygiferð, bremsar, en sleppir svo bremsunni og lætur vaða. Við semsagt lendum í bílslysi þarna á síðasta spölnum. Bíllinn kemur bara askvaðandi inn í hliðina á okkur og glerbrotunum svoleiðis rignir yfir okkur ! En jæja...þetta er bara daglegt brauð þarna og löggan sem svona hentugt átti leið hjá kom og reddaði málunum. Við þurftum samt að borga okkar ferð og leigubíllinn var í rétti..... held ég. Þetta var mjög spes dagur.

Þar sem að klukkan er síðan 00:37 á staðartíma og 07:37 á íslenskum tíma þá ætla ég að koma mér í rúmið núna. Meiri fréttir að degi liðnum.

Eva Kristín

18 maí 2007

In San Fransisco!

Jæja vorum að koma á Best Western sem er hótelið okkar hérna í San Fransisco og það er svona ágætlega kósí en samt eitthvað smá kuldalegt við það. Þetta er rosaleg borg og götur útum allt og í allar trissur og upp og niður.
Klukkan hérna er semsagt 1 eftir miðnætti akkurat núna...eða semsagt 7 tímum á eftir íslandi. Við erum búin að vera að fljúga síðan kl hálffimm að íslenskum tíma og erum orðin mjöööög þreytt á flugi í bili. Fyrst þarna rúmlega 6 tíma flug fyrst til Minneappolis og stoppuðum þar í svona 3 tíma sem okkur veitti ekki af þar sem við þurftum að tékka töskurnar okkar áfram í flug því það var ekki gert á íslandi og þurftum því að draga þær með okkur útum alla flugstöð sem var ekkert lítil, upp rúllustigana og alla leið út í alla enda og til baka. Síðan förum við og fáum okkur ógeðslegan Burger King sem allir fengu í magann af held ég, klórkók og fransbrauðs-majonesborgari. Síðan fórum við að tékka okkur í seinni vélina, til SF og þar lenti Örn í vandræðum þar sem hann fékk vitlausan farmiða og lendir því í veseni í næsta flugi. Vorum svo í 4 tíma í því flugi, en það var frekar kósí því að öll ljós voru slökkt og maður gat bara slappað af.

Núna á hótelinu eru allir í veseni því að öll herbergin eru eins og það eru nokkrir sem eru 3 saman í herbergi, þannig að það vantar rúm fyrir þriðja aðilann.

Við vöknum svo hress og kát á íslensk/amerískum tíma á morgun, smá tíma að venjast klukkunni hérna, og förum í heimsókn kl 9 á tímanum hér. En við erum semsagt að fara að sofa núna og næstum búin að vaka í sólarhring!

Til hamingju með afmælið Örn minn :*

http://utskrift2007.blogspot.com/ Linkurinn á útskriftarferðina og ferðaáætlun.

11 maí 2007

Þvert yfir US and A

Vá ! Bara 6 dagar í Bandaríkin og ég að verða geðveikt spennt hérna! Bráðum að pakka niður bara. Þetta verður rosalega spennandi ferð og mikið gert, og ég er líka búin að finna mér búðir sem mig langar í ef ég fæ nægan frítíma. Förum semsagt í 8 flug á 3 vikum ! Læt ferðaplan hérna inn áður en ég fer...og held svo smá dagbók á meðan ég er úti.

Næst síðasta prófið mitt í dag og það gekk fínt, allavega ekki búið að láta mig vita að ég hafi fallið í einhverju enn, gott. Fékk risastóra 8 í dönsku 203 í versló ! Enn að bíða spennt yfir hinum fjarnámseinkunnunum, en síðan er Sögupróf á mán. Síðan FRÍ.

Fer í heimsókn heim núna á morgun og ætla að liggja í leti í heitum pott og skreppa kannski í 2-3 tíma reiðtúr ! Horfi á Eurovision kannski með einu auganu svona, og ísland á voða bágt með að komast áfram í þessarri keppni.

Mæli með Supernatural, nýjir þættir sem njóta vinsælda í Bandaríkjunum og ég byrjaði að horfa á í gær.
Annars, Góða helgi!

08 maí 2007

Ný byrjun


Þá er komið að því að stofna nýja síðu og vera fljótari að segja frá atburðum.

Næstu daga mun ég fræða ykkur um ferðina mína til Bandaríkjanna og svo lífi mínu í Danmörku. Þannig að þetta er ný síða með nýjum atburðum :)


Núna er ég í lokaprófum og eins og stendur þá eru 2 próf eftir af 9 áföngum. Það er vonandi að ég nái öllum prófunum og með ásættanlegum einkunnum því að ég er að stefna á að fara til Danmerkur í haust í skóla. Ég byrja svo að skrifa um Bandaríkin þann 17 maí því að þá verður lagt af stað í 3 vikna geggjaða ferð :)


Hilsen, Eva