18 maí 2007

In San Fransisco!

Jæja vorum að koma á Best Western sem er hótelið okkar hérna í San Fransisco og það er svona ágætlega kósí en samt eitthvað smá kuldalegt við það. Þetta er rosaleg borg og götur útum allt og í allar trissur og upp og niður.
Klukkan hérna er semsagt 1 eftir miðnætti akkurat núna...eða semsagt 7 tímum á eftir íslandi. Við erum búin að vera að fljúga síðan kl hálffimm að íslenskum tíma og erum orðin mjöööög þreytt á flugi í bili. Fyrst þarna rúmlega 6 tíma flug fyrst til Minneappolis og stoppuðum þar í svona 3 tíma sem okkur veitti ekki af þar sem við þurftum að tékka töskurnar okkar áfram í flug því það var ekki gert á íslandi og þurftum því að draga þær með okkur útum alla flugstöð sem var ekkert lítil, upp rúllustigana og alla leið út í alla enda og til baka. Síðan förum við og fáum okkur ógeðslegan Burger King sem allir fengu í magann af held ég, klórkók og fransbrauðs-majonesborgari. Síðan fórum við að tékka okkur í seinni vélina, til SF og þar lenti Örn í vandræðum þar sem hann fékk vitlausan farmiða og lendir því í veseni í næsta flugi. Vorum svo í 4 tíma í því flugi, en það var frekar kósí því að öll ljós voru slökkt og maður gat bara slappað af.

Núna á hótelinu eru allir í veseni því að öll herbergin eru eins og það eru nokkrir sem eru 3 saman í herbergi, þannig að það vantar rúm fyrir þriðja aðilann.

Við vöknum svo hress og kát á íslensk/amerískum tíma á morgun, smá tíma að venjast klukkunni hérna, og förum í heimsókn kl 9 á tímanum hér. En við erum semsagt að fara að sofa núna og næstum búin að vaka í sólarhring!

Til hamingju með afmælið Örn minn :*

http://utskrift2007.blogspot.com/ Linkurinn á útskriftarferðina og ferðaáætlun.

1 ummæli:

Lilja Dröfn sagði...

Jæja loksins komin út:) ohh mig dreymir alveg um það að fara einhvertímann til USA:) Vona að þið fáið gott veður þarna úti;) hafið það gott:)

P.s. á örn afmæli í dag? Til hamingju með afmælið þá, Gamli;)