Í dag áttum við síðan frídag frá öllum heimsóknum og notuðum daginn vel. Fórum niður í bæinn um 9 leytið og röltum þar um að leita að myndavélabúðum. Fundum þar nokkrar og sumar með okurverði. Fundum svo eina að lokum sem var nokkuð sanngjörn. Gerðum okkur þar með smá hlé og stungum okkur í verslunarmiðstöðina sem er þarna í miðbænum og er á 5 hæðum allavega. Ég persónulega missti mig algjörlega og keypti helling held ég, og Örn er nú búinn að finna sér soldið líka. Vorum semsagt í bænum í mest allan dag og keyptum ýmislegt. Fórum svo aftur í myndavélabúðina og ég skellti mér á eina rosalega fjárfestingu! Keypti mér semsagt Canon 30D og 2 linsur, tösku, 4 filtera, kort og batterí. JAHÁ! Eins gott að hún skemmist ekki á næstunni allavega því að hún er GEÐVEIK!
Og takið nú eftir, að þegar við vorum loksins komin uppá hótel aftur og ákváðum að fara að borða eitthvað saman á Fishermans Wharf, þá þurftum við auðvitað að taka leigubíl. Fórum í tveimur leigubílum og ég, Örn, Hjalti og Siggi vorum í seinni bílnum. Gaurinn keyrir auðvitað eins og brjálæðingur niður og upp allar brekkurnar hérna (verra er á íslandi) og þegar við vorum í síðustu götunni og sáum restina af liðinu okkar, þá þarf endilega að koma gatnamót og við lítum til vinstri ..... þar kemur bíll á fleygiferð, bremsar, en sleppir svo bremsunni og lætur vaða. Við semsagt lendum í bílslysi þarna á síðasta spölnum. Bíllinn kemur bara askvaðandi inn í hliðina á okkur og glerbrotunum svoleiðis rignir yfir okkur ! En jæja...þetta er bara daglegt brauð þarna og löggan sem svona hentugt átti leið hjá kom og reddaði málunum. Við þurftum samt að borga okkar ferð og leigubíllinn var í rétti..... held ég. Þetta var mjög spes dagur.
Þar sem að klukkan er síðan 00:37 á staðartíma og 07:37 á íslenskum tíma þá ætla ég að koma mér í rúmið núna. Meiri fréttir að degi liðnum.
Eva Kristín
3 ummæli:
þú ert nú algjör brandari Eva mín.. haha gott að þið sluppuð allavega ómeidd úr bílslysinu. fyndið samt hvað það er mikil óhollusta þarna.. enginn subway ? hvað myndi ég gera :O !!
kv. Lovísa Súpersystahhhhhh
Jújú blessuð það er subway útum allt og McDonalds og KFC og bara name it sko. Samt allt óhollt :D
Hæhæ, ég er hérna á Lanzarote núna fer heim á morgun, höfum reyndar allan daginn á morgun til að liggja í sólbaði eða e-ð. þvíð flugið er ekki fyrr en 9 um kvöldið. Ég, Maggi og Doddi erum búin að fara á úlfaldabak, það vargeggjað stuð, fyrir utan það hvað ég var hrædd við úlfaldann fyrir framan mig, hann var með rassinn nánast í andlitinu á mér og prumpaði svona rosalega og ég bara beið eftir að hann myndi kúka:S en það gerðist ekki sem betur fer. svo fórum við í gær á Jetskii.. geggjað stuð og ég er með harðsperur eftir það:) en jamm ég hlakka til að hitta þig þegar þú kemur heim. Jiii hvað kostaði þessi myndavél eiginlega?
Skrifa ummæli