11 maí 2007

Þvert yfir US and A

Vá ! Bara 6 dagar í Bandaríkin og ég að verða geðveikt spennt hérna! Bráðum að pakka niður bara. Þetta verður rosalega spennandi ferð og mikið gert, og ég er líka búin að finna mér búðir sem mig langar í ef ég fæ nægan frítíma. Förum semsagt í 8 flug á 3 vikum ! Læt ferðaplan hérna inn áður en ég fer...og held svo smá dagbók á meðan ég er úti.

Næst síðasta prófið mitt í dag og það gekk fínt, allavega ekki búið að láta mig vita að ég hafi fallið í einhverju enn, gott. Fékk risastóra 8 í dönsku 203 í versló ! Enn að bíða spennt yfir hinum fjarnámseinkunnunum, en síðan er Sögupróf á mán. Síðan FRÍ.

Fer í heimsókn heim núna á morgun og ætla að liggja í leti í heitum pott og skreppa kannski í 2-3 tíma reiðtúr ! Horfi á Eurovision kannski með einu auganu svona, og ísland á voða bágt með að komast áfram í þessarri keppni.

Mæli með Supernatural, nýjir þættir sem njóta vinsælda í Bandaríkjunum og ég byrjaði að horfa á í gær.
Annars, Góða helgi!

4 ummæli:

Lilja Dröfn sagði...

Eva mín varstu núna fyrst að uppgötva supernatural? það er búið að vera að sýna það á sirkus:) heheh. já það er e-ð bilað bloggið.. ég get ekki signað mig inn:( en ég bíð með eitt stórt blogg:)

Nafnlaus sagði...

Já það er sko aldeilis stutt í þessa ferð okkar.
Ég og Eva erum búin að ná í 2 seríur af supernatural og ætlum aldeilis að horfa á það á meðan við eyðum tíma okkar í flugvélunum 8.

Lilja Dröfn sagði...

Hehe, já þið eigið eftir að gleyma að þið séuð í flugi, þetta eru svo skemmtilegir þættir;) En Eva ég er að fara að leggja af stað austur núna, ég kíki kannski bara í seinnipartinn til þín;) see you:)

Nafnlaus sagði...

Jó, góða ferð út:) skemmtið ykkur alveg óendanlega vel, see you in 3 weeks baby;)