24 ágúst 2007

Flutningurinn á Gammelmosevej

Já þá erum við loksins komin....heim! Lentum í Danmörku kl 6 að dönskum tíma og ég svaf eins og steinn alla leiðina og Örn líka. Fengum síðan nýlegan WV Passat á flugvellinum í staðinn fyrir Peugeot station bíl og hann er bara búinn að reynast okkur mjög vel.
Íbúðin var alveg eins og við bjuggumst við og jafnvel bara betri. Okkur líkar bara mjög vel við hana og frábært að hún sé glæný. Erum svo búin að vera að hendast hingað og þangað til að leita að húsgögnum, fara í ikea, jysk, elgiganten, bive mobler og enduðum svo í risastórri Daells Bolighus verslun þar sem við keyptum svo öll okkar helstu húsgögn í dag og í gær. Ég er síðan núna að bíða eftir að húsgagna sendingin renni í hlað með allt heila klabbið :) Ég er líka búin að skúra alla íbúðina einu sinni.
Það eru svo komnar nokkrar skítsæmilegar myndir af komunni okkar hingað en það koma síðan fleiri og betri seinna meir þegar ég hef tíma í það.
Hilsen fra DK

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju med ibudina;) Hun er ekkert sma flott!

kv.Tinna Kristin

Nafnlaus sagði...

til hamingju með íbúðina dúllan mín, vonandi gengur allt frábærlega....

Ekkatín sagði...

Takk fyrir kveðjurnar :) Þetta gengur allt saman rosalega vel enn sem komið er :D

Nafnlaus sagði...

vertu nú dugleg að leyfa okkur að fylgjast með.... Það er svo gaman að lesa nýjar færslur ;)