20 desember 2007

Island og jul!



Þá er loksins komið að því...Ísland í fyrramálið. Maður er búinn að bíða spenntur eftir að hitta alla og slappa af í jóla og áramóta fríinu :) Þetta er búið að vera rosalega hratt að líða og manni finnst bara eins og maður sé að fara til útlanda (sem maður er í rauninni). Það verður svo rosalega skrítið að koma til landsins í fyrsta skipti síðan í ágúst og heyra ekkert nema íslensku útum allt. Vona bara að ég detti ekki útúr dönskunni svona um leið og ég er búin að ná henni!


Við semsagt lendum að staðartíma kl 14:30 og reynum svo að heimsækja alla áður en við förum aftur 7 janúar.


Ég reyni kannski að blogga eina eða tvær færslur á íslandi en gæti samt gleymt mér í gleðinni :) Þá kemur allavega færsla í janúar!


En allavega ...þá segi ég bara.. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! :)


Kærlig hilsen frá Evu og Erni

1 ummæli:

Auðríkur sagði...

Gleðilega hátíð. Biðjum kærlega að heilsa öllum á Íslandi. Höfum það mjög gott hér. Þegar við vorum búin að loka okkur inni í litlu íbúðinni okkar, taka upp jólaskapið og andann og hefðirnar allar þá komu jólin til okkar. Þið getið nú að minnsta kosti sent myndir inn á bloggið fyrir okkur úr jólaveislunni.

Kærlig hilsen,
Auður, Eiríkur, Sigga Halla, Björn Orri og Guðmundur.