Já Ranna mín...nákvæmlega það sem ég var að spá í að gera :D
Ég er semsagt búin með mína fyrstu viku í danska skólanum mínum og það er soldið mikil danska töluð þar! Er búin að kynnast nokkrum núna.
Skildi í rauninni varla baun fyrstu 2 dagana þar en síðan fór þetta að koma hægt og rólega og ég var farin að skilja flestallt sem kennarinn og krakkarnir sögðu í enda vikunnar. Lenti reyndar í því á fimmt að kennarinn talaði alveg ótrúlega hratt! En það reddaðist fínt.
Við erum bara í einhverskonar Digital production kúrs í 5 vikur núna og síðan fer ég í einhvern annan kúrs.
Það er soldið erfitt að tjá sig á dönsku enn en mér fer fram með hverjum deginum. Síðan er einn strákur með mér í bekk sem er að æfa mig í dönsku, sem kemur sér vel :)
Ég keypti mér mánaðarlestarkort sem gildir þá í allar lestar og strætóa sem ganga á þeim 6 Zones sem ég fer í á leiðinni í skólann. Þannig að ég get alltaf skroppið til Kaupmannahafnar og í Field's þegar mér hentar án þess að borga neitt. Kortið kostaði samt alveg 830 danskar :) Ég keypti mér svo bók á dönsku til að lesa á þessum klukkutíma sem það tekur mig að fara í skólann.

Örn er víst kominn með einhvern rosalegan lestur í sínum kúrsum og er lesandi hálfan daginn núna. Hann keypti sér svo hjól í dag og þá fer vonandi minni tími fyrir hann að ferðast í skólann. Það var samt soldið skrautlegt hvernig þessi hjólaleit fór. Vorum búin að finna hjól sem kostaði 4000 og ætluðum að sækja það daginn eftir þegar það væri búið að setja standara á það en síðan hætti Örn við og ákvað að leita aðeins betur og að ódýrara hjóli. Fundum síðan eitt í dag sem var bara fínt og Örn ákvað bara að kaupa það. Fengum síðan hjólið í alveg rosastórum kassa og það fyrsta sem ég hugsaði var að hjólið væri nú sennilega bara næstum í heilu lagi í kassanum en stýrið væri kannski ekki á. Við ákváðum því að panta leigubíl þar sem það er soldið mikið vesen að labba með þetta í strætó. Leigubíllinn kemur svo og um leið og hann sér mig fyrir utan með kassann þá byrjar hann bara að hrista hausinn. Örn fer síðan að tala við hann og hann segir okkur að hringja á stærri bíl bara. Ég fer þá inn og fæ símanúmer hjá sendibílaþjónustu og við pöntum bíl sem á að koma eftir klukkutíma. SHIT. Hver nennir að bíða fyrir utan búð í klukkutíma að gera ekkert. Þannig að ég ákvað bara að opna kassann og gá hvort það væri ekki bara hægt að setja hjólið saman þarna á staðnum og viti menn. Hjólið er bara í heilu lagi ofaní kassanum og við þurfum bara rétt að setja pedalana á og rétta stýrið af. Þvílíkur munur og Örn gat bara hjólað í ró sinni heim og það tók hann ekki nema 7 min. Það er mjög þægilegt að hjóla hér um og ferðast í lestum og strætó.
Ég tók nokkrar myndir af Stengården station og húsinu okkar í morgun og setti þær inná myndasíðuna. Verð að fara að taka fleiri myndir svona dagsdaglega.
Við erum búin að vera soldið myndarleg hérna og elda okkur heilan kjúkling og prófa okkur áfram í hinu og þessu. Ég bakaði meira að segja muffins í dag og María bakaði skinkuhorn :)
Núna er svo bara að slappa af í sófanum og kannski sötra smá hvítvín :)
Hilsen !
2 ummæli:
hæhæ það er gott að heyra að allt sé að ganga upp þarna hjá ykkur :D hér er bara mígandi rigning og rok og er ekkert að fara að breytast á næstunni ..
og þú myndarleg Eva mín að baka :D
kv ranna :********
Hæhæ... ánægð með þig að vera svona dugleg við að blogga:) ætlar þú ekki að fá þér hjól líka? Hver er María? :p Ég var annars að koma úr endajaxlatöku í dag, og það er þá núna búið að rífa allt í allt 8 tennur úr mér frá því að ég fékk mér teina:s en það verða ekki teknar fleiri sem betur fer;) heheh
knús frá Íslandi;*
Skrifa ummæli