Það sem helst er frá að segja er að Svana og Jóhanna komu í heimsókn.
Þær höfðu það mjög gott hérna í fríinu en þær spiluðu mikið XBOX og síðan höfðum við keypt kassa af kóki í gleri sem þær kunnu vel að meta.
Ég reyndar bauð þeim líka Harboe Cola(svipað og Bónus Cola en samt betra) en það var ekki alveg að slá í gegn hjá þeim.
Þær höfðu nóg að gera hér í DK enda fóru þær í Field's, Lyngby Storcenter og á strikið og síðan skruppum við eitt kvöldið niðrí bæ.
Eva er núna að læra hvernig maður framkallar filmur úr gömlum myndavélum og var það mjög forvitnilegt fyrir mig(örn) að sjá hvernig það er gert.
Svana bauð okkur síðan út að borða eitt kvöldið og fórum við á Hard Rock Cafe, sem er staðsett niðrí bæ, og fengum við mjög góðan mat. Takk fyrir það Svana!
Aðrar fréttir eru að ég var orðinn svo þreyttur á að það væri alltaf að springa á dekkinu hjá mér að ég fjárfesti í kevlar dekki. Sem er búið að standa sig í cirka mánuð núna. Þannig að... Bring it on glerbrot, naglar, býflugur og annað sem getur sprengt dekk.
1 ummæli:
Sjáum hvernig þetta dekk stendur sig. Ég og Jóhanna settum upp ýmsar gildrur á leiðinni í skólann þinn, þú verður að vara þig ;)
Skrifa ummæli