27 janúar 2008

Danmörk

Jæja....við horfðum á úrslitaleikinn í EM á sunnudaginn og héldum með Danmörku að sjálfsögðu, og viti menn, Danmörk vinnur þetta bara! Í fyrsta skipti eru danir búnir að vinna EM og stóðu sig bara vel. Ætli það hafi ekki verið allt á fullu niðrí bæ þar sem margir danir eru í fríi þessa vikuna :)
Til hamingju Danmörk!


En að öðrum málum...þá fórum við Örn í Harald Nyborg á laugardaginn og skoðuðum hjól fyrir mig. Við fundum síðan eitt þar sem er nákvæmlega eins og hjólið hans Arnar nema bara kvenmannshjól og enduðum svo bara á því að kaupa það :) Þannig að staðan er sú að ég er búin að fá hjól :D og við eigum alveg eins hjól...hehe. Takk fyrir hjólið elsku Örn minn :*
Við erum svo búin að vera að hjóla útum allt í gær og í dag :) Fórum nú einnig í ræktina í gær...loksins!



4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já maður hélt nú með Danmörku í EM eftir að það var ljóst að Ísland var ekki í toppbaráttunni!

Ég og eva erum orðin rosaleg á svona eins hjólum. Við erum líka byrjuð að fara á fullu í ræktina þannig að fitan alveg lekur af manni.
Einir og María voru að kaupa kort í dag þannig að við munum vonandi draga hvort annað í ræktina.

Kv, Örn

Nafnlaus sagði...

Flott hjól! Hvenær opnar tívolí?

Ég tala frá hjartanu.

Nafnlaus sagði...

Það opnar 17 apríl Þórir!

Ég tala líka frá hjartanu :)

Nafnlaus sagði...

Genial brief and this fill someone in on helped me alot in my college assignement. Gratefulness you for your information.