20 desember 2007

Island og jul!



Þá er loksins komið að því...Ísland í fyrramálið. Maður er búinn að bíða spenntur eftir að hitta alla og slappa af í jóla og áramóta fríinu :) Þetta er búið að vera rosalega hratt að líða og manni finnst bara eins og maður sé að fara til útlanda (sem maður er í rauninni). Það verður svo rosalega skrítið að koma til landsins í fyrsta skipti síðan í ágúst og heyra ekkert nema íslensku útum allt. Vona bara að ég detti ekki útúr dönskunni svona um leið og ég er búin að ná henni!


Við semsagt lendum að staðartíma kl 14:30 og reynum svo að heimsækja alla áður en við förum aftur 7 janúar.


Ég reyni kannski að blogga eina eða tvær færslur á íslandi en gæti samt gleymt mér í gleðinni :) Þá kemur allavega færsla í janúar!


En allavega ...þá segi ég bara.. Gleðileg jól og farsælt komandi ár! :)


Kærlig hilsen frá Evu og Erni

02 desember 2007

Regn og jul?



Ætli maður þurfi ekki að láta undan þrýstingi og blogga loksins þar sem maður býr svona "langt" frá. Á þessarri stundu er alveg hreint úrhelli hjá okkur hérna í Danmörkinni og ég sé fyrir engan endi á henni eins og er. Í gær var okkur svo nokkuð brugðið því að við sáum allt í einu blá blikkandi ljós hérna fyrir utan gluggann og þegar við kíktum út sáum við slökkvibíl og heyrðum í fleirum á leiðinni...hvað í ósköpunum...þeir urðu þar með þrír talsins og allir með þvílíkt blikkandi ljós og við héldum því að það væri eitthvað svakalegt að gerast þarna fyrir utan. Sáum að það var eitthvað fólk hjá inngangnum á lestarstöðinni og svo var byrjað að spúla gólfið þarna...þá var það bara einhverjir hálfvitar sem höfðu tekið öll dagblöðin sem eru við innganginn og kveikt í þeim. Svaka viðbúnaður við einhverju svona og núna er enginn búinn að taka þetta upp og þetta liggur ógeðslega subbulegt á sama stað.


Svo er það af honum "Ödda cykel" ...litla greyið er búinn að lenda í því svona fjórum sinnum að þurfa að finna gat á aftara dekkinu sínu og setja bót á það. Síðan gerðist það í gær þegar hann var að hjóla heim í rigningu slíkri og er núna...að það bara sprakk á þessu blessaða afturdekki og Örn þurfti að labba alla götuna okkar heim. Hann hóf svo allsherjarleit ad nýja gatinu og þurfti ekki að leita lengi því að það heyrðist í því langa leið. Hann getur svo vonandi hjólað á því næstu daga án vandræða :)


Síðan er það að Erla og Þórir (amma og afi Arnar) komu í heimsókn til okkar sunnudaginn 25 nóv. Þau komu í kaffi, köku og kanilsnúða A La Eva og Örn. Síðan fórum við með þeim niður í Kaupmannahöfn og fundum okkur Jensen's Bøfhus og fengum alveg rosalega góðan mat. Við fórum líka að skoða hótelið þeirra seinna um kvöldið. Eftir að við kvöddum þau þá fórum við og hittum Eini, Maríu, Önnu Kristínu og Þröst á áströlskum bar. Anna Kristín er systir Maríu og Þröstur kærastinn hennar og þau voru einnig í heimsókn þessa helgina. Þar voru þau semsagt að spila Pool og við ákváðum að joina bara. Tók nokkrar myndir af því sem eru svo inná myndasíðunni minni.

Þar sem það er svona langt síðan ég skrifaði síðast þá er gaman að segja frá því að Ásdís (mamma Arnar) kom í heimsókn helgina 10 nóv og var því okkar fyrsti gestur! Hún lenti nú samt í því að það byrjaði að snjóa hérna daginn eftir og á mánudeginum þegar hún ætlaði síðan að fara með Erni niður í Field's, þá var lestarkerfið í algjöru rugli útaf sambandsleysi í ørestad og allar lestar sem áttu að fara þangað gengu ekki. Þau þurftu því að fara í skrautlega strætóferð en enduðu loks í Field's. Ég hitti þau síðan þar eftir skóla. Daginn eftir fóru þau síðan á Strikið og ég rétt náði að hitta þau áður en Ásdís tók lest útá flugvöll frá Hovedbanegård. Ég var búin að hanga í skólanum mínum til kl 5 til að geta klárað vefsíðuna mína. Fór í prófið daginn eftir og fékk 12 :) (hæsta einkunn á dönskum skala).


Við erum svo farin að hlakka endalaust til jólanna og öllu sem þeim fylgja. Við erum komin með eitt gervi jólatré úr tréi og svo líka eitt sætt stráhreindýr. Keypti líka eins Hyacyntu þar sem ég elska lyktina af henni. Við erum búin að troða öllum blómunum okkar útí glugga til að þau fái svo sem mesta birtu núna í öllu skammdeginu.

Það verður svo rosalega gaman að koma til Íslands um jólin og hitta fjölskyldur og ættingja :) Ef það eru einhverjar spes óskir um jólagjöf, þá er endilega að láta okkur vita bara.

Jólakveðja, Eva!